28.8.2008 | 00:17
Ég má alveg spyrja.
Jæja þá gott fólk þá getum við snúið okkur að veruleikanum aftur eftir þetta handboltaæði. Mig langar að fara inná kostnað við þessa hátíð þarna í Rvk í dag sem var ansi sæt athöfn en þetta hefur kostað helvítis helling af peningum (okkar peningum). Mér var tjáð það að magnið af bensíni við koma svona rellu í loftið væri sviðað og allar bensínstöðvar í Rvk seldu á einum sólahring og við vitum að bensín er ekki ókeypis en við getum þó huggað okkur við það að það er hægt að fá 1,2% afsl hjá sumum.Þá spyr ég hefði ekki bara verið hægt að lenda í Keflavík keyra til Rvk eins og fólk gerir dags daglega (að vísu vinnur ekki fólk silfur á stórmóti daglega). En nóg af þessu bulli og í annað. Frú Þorgerður Katrín Ráðherra og Guðmundur 'Arnason Ráðuneytisstjóri og makar þeirra hafa nú heldur betur fengið úr kassanum (okkar) svona ca 4 millur í þessum mánuði og geri aðrir betur til hamingju með það bæði tvö. Næst langa mig að velta þessari fálkaorðu fyrir mér ss orða fyrir eitthvað afrek er flott en við skulum hugsa aðeins um fálka td ef ég er kallaður fálki þá verð ég sár og helvítis fálki þá verð ég mjög sár svo fálkaorða er kannski ekki svo töff eftir allt saman. En blákaldur veruleikinn blasir við okkur öllum og við skulum ekki gleyma fólki sem á við alvarleg vandamál að etja eins og td Rögnu og dóttur hennar hana Ellu Dís en þeim mægðum vantara bara 7 millur til að fá lífsnauðsynlega læknismeðferð og vona ég að Þorgerður Katrín og félagar gætu nú reynt að sjá hvort ekki sé smá aur eftir í kassanum (okkar) til að hjálpa þessum mæðgum. kv Niðurlútur
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Athugasemdir
Þú ert nú meiri Fálkinn Siggi minn
þó að ég sé þér hjartanlega sammála :)
Maríanna besta konan og muffins snilli (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 23:17
Hvaða bull er þetta að velja sér viðurnefnið Niðurlútur? Mér finnst það ekkert sérstaklega dæmigert fyrir þína framkomu.
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 1.9.2008 kl. 15:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.